Í þessum kafla ætlum við á einfaldan hátt að lýsa hluta af þeim vandamálum sem geta komið upp þegar þú stundar veiðar. Einnig skoðun við ýmislegt sem þú gætir hugsanlega gert til að bæta úr málun að svo miklu leyti sem það er hægt. Til einföldunar, þá munum við halda okkur við botvörpur og flotvörpur, en þar sem það á við þá gildir þetta einnig um tvöfaldar vörpur dregnar af einu skipi, eina vörpu dregna af tveim skipum, rækjuvörpur og dragnót.
Allt sem við vísum til hér, er það sem sjómenn hafa tjáð að þeir hafi gert við mismunandi aðstæður, og telja að hafi hjálpað þeim stórlega.