Um okkur

Scanmar er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í hönnun, þróun og framleiðslu á veiðistýringarkerfum. Á síðastliðnum 25 árum hafa meira en 1.000 kerfi verið sett um borð í skip um allan heim og á það bæði við um fiskiskip sem og rannsóknarskip.

Á þessum tíma hefur Scanmar fjárfest sem nemur um 8.500 milljónum íslenskra króna í vöruþróun sem ekki aðeins hefur skilað sér í gerð nýrra nema, heldur einnig í búnaði sem stenst kröfur sjómanna um rekstraröryggi, gæði og endingu sem á sér ekki hliðstæðu meðal samkeppnisaðilanna.

Meðal mikilvægustu og merkilegustu upplýsinga sem nýju Scanmar kerfin sýna, eru að okkar mati þær upplýsingar sem við fáum um hreyfingu, stöðu og halla á toghlerum, upplýsingar um hraða sjávar og stefnu inn í veiðarfærið og áhrif neðarsjávarstrauma á veiðihæfni veiðarfærisins. Einnig þær upplýsingar sem halli í aflanemum gefur, ekki aðeins í köstun og þegar híft er heldur einnig og aðallega þegar innkomu verður vart í veiðarfærið.

Þessar nýju og mikilvægu upplýsingar hafa mikil áhrif á hagkvæmni og skilvirkni togveiða, einnig sem þær leiða til lækkunnar á olíukostnaði.

Scanmar hefur einnig hannað og þróað búnað fyrir olíuiðnaðinn sem og aðra kröfuharða notendur víða um heim.


Greinasafn
Scanmar AS, PO Box 44, 3167 Åsgårdstrand, Norway, P: (+47) 33 35 44 00, F +47 33 35 44 50, scanmar@scanmar.no