Súper aflaneminn; Greinir innkomu áður en hann kveikir
Scanmar Súper aflaneminn mætir öllum kröfum sem til hans eru gerðar
- Gefur ávalt réttar og áreiðanlegar upplýsingar
- Ný og betri hönnun sem lágmarkar þörf á viðhaldi og þjónustu
- Góð og arðbær fjárfesting til lengri tíma
Notkun:
Aflanemi
- Neminn kveikir með því að strekkist á vír – þetta hefðbundna
- Fljótur að bregðast við og kveikja sé um mikla innkomu að ræða
- Sýnir greinilega ef pokinn er dreginn á hvolfi – snúningur á poka
- Greining á innkomu
- Greinir innkomu á fiski í veiðarfæri með hallamælingu, Pitch & Roll
- Pitch mæling sýnir hvernig pokinn fyllist upp að þeim stað sem neminn er á pokanum
- Sýnir um leið innkomu á fiski, mun fyrr áður en neminn kveikir rauður. Ákvörðun um að snúa í sama lóð tekin fyrr en ella
- Roll sýnir hvernig pokinn og belgurinn haga sér tómur og hvernig hann réttir sig við og breytir hegðun þegar afli gengur aftur í veiðarfærið
- Neminn er breytanlegur með hleðslutækinu þannig að hann getur sent örar upplýsingar upp í skip en hefðbundnir aflanemar
Myndin sýnir virkni hefðbundins aflanema (beina gæna og rauða línan) Sýnir líka breytingu og viðbrögð á hallanum þegar fiskur fer framhjá nemanum á leið aftur í poka
Upplýsingar um nemann:
- Hönnun
- Ný og betri hönnun sem verndar enn frekar alla þá viðkvæmu hluti sem eru inni í nemanum
- Nýtt og enn sterkara plastefni sem neminn er steyptur úr sem dregur enn frekar úr hættu á að neminn skemmist fái hann á sig högg eða mikla pressu. Þá þolir hann betur en nokkru sinni áður að vera dreginn á hvolfi. (snúningur á poka)
- Rafhlaða og ending á hleðslu
- Ný rafhlaða hefur meira en 10 sinnum lengri endingu en eldri gerðir
- Sendingarstyrkur í nemanum er stillanlegur eftir því á hve miklu dýpi verið að fiska og hefur það áhrif á endingartíma rafhlöðunnar
- Mjög skamman tíma tekur að hlaða nemann og er hann því alltaf klár til notkunar. Sé neminn alveg straumlaus duga aðeins örfáar mínútur í hleðslu til að neminn virki í nokkrar klukkustundir í viðbót
- Aukin rafhlöðuending og lengri tími á milli þess að hlaða þarf nemann hefur þau áhrif að raflaðan endist í mörg ár umfram það sem áður hefur þekkst í Scanmar nemum
- Það tekur aðeins rúmlega 2 klst að fullhlaða straumlausan nema
Hleðsla og forritun á nema
- Ný tækni í hleðslutækinu ásamt rafhlöðunni gerir það að verkum að hleðsla rafhlöðunnar fer mun hraðar fram en áður hefur þekkst
- Sendingarstyrkur og sendingartíðni nemans er hægt að breyta með auðveldum hætti með því að tengja nemann við hleðslutækið
- Hleðslutækið getur metið ástand bæði nemans og rafhlöðunnar

Súper aflaneminn; Greinir innkomu áður en hann kveikir
Lesa áfram
Nýji hleraneminn frá Scanmar – uppfyllir allar kröfur sjómannsins
Lesa áfram
Greinasafn
Scanmar AS, PO Box 44, 3167 Åsgårdstrand, Norway, P: (+47) 33 35 44 00, F +47 33 35 44 50, scanmar@scanmar.no