Höfuðlínunemi (Trollsonda)

Þessi höfuðlínumælir er í raun einfaldari útgáfa af trollauganu en hann sýnir hæð/opnun á vörpunni og einnig ef það hefur myndast bil á milli fótreipis og botns. Þessi nemi er þess vegna góður að nota með t.d. hlerahallanemum til að gera sér betur grein fyrir lögun vörpunnar í drætti. Þá er þessi nemi einnig góður með toghraða og skekkjunema til að auðvelda enn frekar stjórnun á vörpunni á meðan togað er.

Sé þessi nemi settur í belginn sést hvort opnun á trollinu sé stöðug og einnig ef um vatnsfötuáhrif er að ræða og þá um leið hvort fiskur er að sleppa. Hann sýnir einnig fiskmagn sem fer framhjá nemanum og með trollauganu á höfuðlínunni er hægt að fylgjast með því hvort fiskur gengur aftur í poka.

Þessi myndi sýnir einfalda uppsetningu á höfuðlínumæli, fjarlægðarnemum, toghraða/skekkjunema og grindarnema við rækjuveiðar.

Höfðulínumælir sýnir hversu vel gekk að "lenda" trollinu á botninum og að aðstæðu eftir að tog hófst eru stöðugar. Þá má sjá innkomu á rækju hægra megin í myndinni.


Greinasafn
Scanmar AS, PO Box 44, 3167 Åsgårdstrand, Norway, P: (+47) 33 35 44 00, F +47 33 35 44 50, scanmar@scanmar.no