Sé botnsnertinemi settur á fótreypi dregst hann aftan við það og fylgir botninum þó svo hann sé ójafn og erfiður yfirferðar. Þrátt fyrir oft afar erfiðar aðstæður fyrir þennan nema að vinna við, þá eru upplýsingarnar frá honum stöðugar. Öllum er það ljóst að sé verið að veiða botnlægar tegundir þá getur það skipt sköpum um aflabrögð að veiðarfærið dragist eftir botninum þ.e. sé ekki að lyftast frá botni í tíma og ótíma. Þegar slíkt hendir þá sleppur fiskur undir fótreypið. En hvað er góð botnsnerting og hvað ekki?
Til einföldunar má segja að það sé best að hafa góða og þétta botnsnertingu veiðarfæris við botninn þegar botnskilyrði eru hörð. Það hinsvegar skapar mikinn hávaða frá hlerum og veiðarfærinu sjálfu. Ef botninn er mjúkur (drulla) þá er kannski betra að draga veiðarfærin ekki eins þung á botninum til að forðast að fá ekki drullu í veiðarfærið. Þessar skýringar eru þó alls ekki fullnægjandi, það kemur meira til sem huga þarf að. Olíueyðsla er nokkuð sem allir þurfa að hugsa um og ekki má gleyma. Því harðari / þyngri sem botnsnertingin er verður mótstaðað meiri sem aftur leiðir til meiri olíueyðslu.
Það sem gerir botnsnertinemann frá Scanmar svo mikilvægan eru þær hallaupplýsingar sem hann gefur frá sér. Þessi nemi mælir halla á sama hátt og hlerahallanemi. Því er auðvelt að sjá og gera sér grein fyrir hvort og þá hversu þungt veiðarfærið dregst eftir botninum. Þessi nemi auðveldar þér að “fínstilla” veiðarfærið í drætti og þannig koma í veg fyrir að fiskur sleppi annaðhvort undir eða yfir veiðarfærið.
Lesið meira um hvernig notkun botnsnertinema getur aukið afla.