Ný tækni, bæði hvað varðar nemahönnun, rafhlöðutækni og hleðslutækni hefur gert mögulegt að þróa Fjarlægðarnema sem hægt er að forrita nákvæmlega svo henti mismunandi aðstæðum. Ekki síst gefur þetta færi á lausnum sem binda endi á vinnukrefjandi aðgerðir. Scanmar hefur þróað þrjá nýjar útgáfur af Fjarlægðarnemanum sem byggja á hinni nýju SS4 tækni, þannig að hver sjómaður getur fengið nákvæmlega það sem hann óskar sér.
1. Hinir háþróuðustu meðal nýju Fjarlægðarnemanna hafa allt sem þú kannt að óska þér, þegar Fjarlægðarnemi er annars vegar:
- Fleiri hundruð klukkustunda notkunartími. Þetta er breytilegt og fer eftir stillingum.
- Stuttur hleðslutími.
- Hleðsla á meðan nemar eru hlerunum.
- Hægt að forrita sendistyrk.
- Hægt að forrita uppfærsluhraða.
- Fjölvirkir. Einnig hægt að samþætta með HleraHalla, Dýpi og örðum virknimöguleikum, annað hvort við innkaup eða síðar með því að hlaða niður leyfi.
- Forritaðir úr brú.
- Sjálfvirk forritun á brúareiningu og nema.
Hinar tvær gerðir Fjarlægðarnema hafa einnig marga af sömu kostum og eru nefndir hér fyrir ofan. Þetta er annars vegar nemi sem hefur einfaldari byggingu og er ekki beintengdur við tæki í brú, er með einfalda Hallavirkni og hægt að uppfæra. Hin vegar er um að ræða nema sem er mjög einfaldur og ekki hægt að uppfæra:
2. Fyrrnefndi Fjarlægðarneminn hefur marga þá eiginleika sem nefndir eru að ofan, en vantar nokkra. Þessi nemi getur sýnt millibil á hallagildum og einstakar hallatölur sem gefur ágætis yfirsýn varðani halla á hlerunum, en veitir þó ekki jafn nákvæmar upplýsingar og venjulegur Hallanemi.
Það er hægt að uppfæra Fjarlægðarnemann þannig að hann hefur fulla virkni sem er sambærileg við tæknilega þróuðustu nemana.
3. Einfaldasta útgáfan kemur alfarið í stað fyrri Fjarlægðarnema. Þessi nemi hefur mikið rafhlöðurými og er hægt að hlaða hann hratt, en hann hefur ekki möguleika á forritun.
Báðir þessir tveir síðastnefndu eru einnig stórt skref framávið fyrir þá sem hafa notað eldri kynslóðir af brúarkerfum (CGM, RX-400, C600 og 4000 kerfin).

Fjarlægðarnemarnir hafa verið þeir nemar sem hafa sennilega haft mesta þýðingu fyrir flesta, þó einhverjir myndu reyndar frekar nefna Höfuðlínumæli, Toghraða/Vörpulögun eða Aflanemana sem þá mikilvægustu. Að ekki sé ný heldur gleymt að minnast á HleraHallanemana.
Sé litið hjá vatnsfötuáhrifum og snúningi á vörpunni þá er það virkni toghleranna sem hefur mest að segja varðandi skilvirkni við togveiðar.
Þegar Scanmar kynnti fyrst á markaði Fjarlægðarnemana fyrir rúmlega 25 árum, þá var rafhlöðutæknin stórt vandamál. Við kusum tvo mismunandi hraða á uppfærslu sem báðir voru ásættanlegir með tilliti til þess að menn vildu komast hjá því að hlaða svo oft. Hið áhugaverða er að þeir framleiðendur sem síðar hafa reynt fyrir sér á þessum markaði, hafa kosið nákvæmlega sömu uppfærslu. Það staðfestir í reynd að val okkar var ekki svo slæmt, þó það hafi verið gert fyrir 25 árum síðan.
Allir nýju Fjarlægðarnemarnir frá Scanmar eru festir á hlerana á sama hátt og Hallanemarnir. Þeir eru settir í skó sem eru logsoðnir fastir á hlerana, í sömu línu og lengdarás hlerans. Nemarnir eru með örðum orðum ekki festir með algengum hætti þannig að brennt sé gat á hlerann: Þetta er dýrarara í framleiðslu þar sem nemarnir eru hannaðir öðruvísi, og vegna þess að þetta gerir kröfu um tvo hljóðsendara, einn á hverri hlið.
Kostirnir eru fyrst og fremst þeir, að það má uppfæra sömu nemana svo þeir sýni einnig HleraHalla. Þá er það algert skilyrði að nemarnir séu festir í rétt á lóðrétta og lárétta ása hlerans. Til viðbótar við þetta má benda á að nemaskórnir stingast ekki út um bakhlið hleranna þar sem þeir myndu leiða til þess að minnka skverunarkraft hleranna vegna truflandi áhrifa á sjávarstreymið umhverfis toghlerann.
Nemarnir í hinni nýju Fjarlægðarnemaseríu frá Scanmar hafa sömu stærðarmál og lögun, og HleraHallanemarnir. Þeir nota því sömu sett af skóm sem soðnir eru beint á hlerana.