ScanScreen

Nútíma veiðistjórnunarkerfi með trollauga, flæðinema á höfuðlínu og í belg, hlerahallanema og aflanema með halla, sem viðbót við alla aðra hefðbundna nema hefur leitt til þess að þróa hefur þurft frekari úrfærslu á þeim veiðistjórnunarkerfum sem fyrir voru.  Þessar miklu upplýsingar sem frá þessum nýju nemum berast krefjast fleiri skjáa við kerfin og á þetta sérstaklega við um þau skip sem toga 2 og jafnvel 3 troll samtímis.

Yfirleitt eru þá notaðir 2-3 skjáir í brúnni og einn til viðbótar þar sem togspilum er stjórnað. 

En það er hægt setja skjái á þá staði sem óskað er, jafnvel staðsetja þá í klefa þeirra sem vilja og þurfa að fylgjast með hverju sinni.

Með ScanBas kerfinu þá þarf að skipta á milli mismunandi skjámynda en með ScanScreen kerfinu þá hefur þú fleiri skjái og þar með fleiri skjámyndir uppi samtímis sem gerir þér enn frekar mögulegt að fylgjast með toginu.

Það eru mörg skip sem hafa notað ScanScreen kerfið um árabil og reynsla þeirra er aðeins jákvæð.  Staðreyndin er sú að þeir sem upphaflega hafa keypt ScanBas kerfi hafa síðar uppfært það kerfi upp í ScanScreen kerfi með góðum árangri. Með ScanScreen kerfinu getur þú til dæmis horft á trollaugað á einum skjá og fylgst þar með innkomunni á meðan hægt er að sjá á öðrum skjá aðrar myndir  og ferilskráningu t.d.

  • Hlerafjarlægð
  • Hlerahalla og stöðugleika
  • Innkomu fisks í belg og poka með hallaferilskráningu

Í þessari mynd er auðveldlega hægt að sjá að hlerar eru óstöðugir (1) og ástæðan hliðarstraumum frá stjórnborða (2) Á sama tíma, að það eru tveir aflanemar í notkun (3) og að pokinn er snúinn á stjórnborða.

 

Trollmyndin talar sínu máli og sjá má lóðningar og innkomu á fiski.

 

Ferilmyndin sýnir ferilskráningu tveggja hefðbundinna aflanema en með innbyggðum halla einnig. Ferlar sýna þegar afli kemur í poka ( í hverju holi) og breytingar á halla verða þegar innkoma er á fiski aftur í poka. Það er auðvelt að sjá þetta sé það borið saman við myndina frá trollauganu.

Það er einnig áhugavert að sjá hegðun aflanemans (4) sem er í takt við það magn sem gengur aftur í pokann og einnig áhugavert að sjá hallaferilinn breytast nokkru áður en aflaneminn kveikir rauður.  Þessar upplýsingar er gott að nota við ákvörðun um hvort snúa eigi á toginu og fara aftur í sömu lóðningu.


Greinasafn
Scanmar AS, PO Box 44, 3167 Åsgårdstrand, Norway, P: (+47) 33 35 44 00, F +47 33 35 44 50, scanmar@scanmar.no