Skráning á upplýsingum á meðan á veiðum stendur eru mjög mikilvægar. Þær er hægt að nota á ýmsa vegu í framtíðinni. Það skiptir miklu máli að geta haft stjórn á veiðarfærinu í hverju holi, það eykur hagkvæmni veiðanna og einnig sem upplýsingar sem hægt er að skrá eru mikilvægar fyrir skipstjórnendur, eigendur fiskiskipa og fyrir fiskkaupendur.
Scanbas getur skráð upplýsingar frá mörgum nemum samtímis, hér eru nokkur dæmi:
- Skráning á öllum upplýsingum um hvað sé að gerast í hverju holi. Með þessu getur ný vakt gert sér betur og hraðar grein fyrir því hvað var að gerast á vaktinni á undan.
- Skráning á rauntölum í holi til að geta borið saman við sambærilegt hol á sama stað t.d. í síðasta túr.
- Skrá upplýsingar hvað varðar veiðarfærið sjálft og breytingar á því. Með þessu safnast mikilvæg gögn um mismunandi veiðislóðir og nýtast þegar nýju veiðarfæri er slegið undir.
- Skráning á veður og umhverfisáhrifum sem hægt er að nýta sér þegar komið er á veiðisvæðið aftur eftir nokkurn tíma. Þessar upplýsingar er hægt að nota til að átta sig á aðstæðum mun fyrr en ella.
- Skráning á aflaupplýsingum fyrir fiskkaupendur. Tilgangurinn er að hafa ávalt upplýsingar handa þeim er málið varðar og þurfa allar upplýsingar um veiðistað, tíma og aðrar aðstæður.
Að auki þeim upplýsingum sem sjálfkrafa eru skráðar af Scanmar búnaðinum, sem og GPS tækjum, togvindum, dýptarmælum o.s.frv. þá er hægt að fá enn fleiri upplýsingar skráðar bæði sjálfvirkt sem og handvirkt. Þetta er hægt að gera með aukabúnaði s.s. skjáir og lyklaborð við þann búnað sem fyrir er.
Skráning upplýsinga um hvert hol
Gagnagrunnurinn heldur utan um allar helstu upplýsingar um skipið og öðrum upplýsingum sem óskað er eftir að halda utan um. Þetta getur verið breytilegt milli útgerða hvaða upplýsingar eru geymdar. Með sérstökum hætti er hægt að pakka upplýsingum saman og senda á öruggan hátt þannig að sendingarkostnaður frá skipi er lágmarkaður hverju sinni.
Notkunarmöguleikar eru fleiri
Í auknum mæli er nú lögð meiri áhersla á að veiða fyrirfram ákveðnar tegundir og jafnvel stærðir, áhersla á að lágmarka áhrif veiðarfæra á sjávarbotninn, áhersla á olíusparnað o.s.frv. allt til að auka hagkvæmni við veiðar. Þegar þessir möguleikar eru fyrir hendi þá aukast líkur á því að settar verði frekari reglur og bönn við veiðar í framtíðinni.
Fyrir skipstjórnendur fiskiskipa þá eykst krafan um hagkvæmni fiskveiða og í framhaldinu aukin áhersla á lækkun kostnaðar á öllum sviðum.
Notkun á skráðum upplýsingum
Þegar vinna skal með áður skráðar upplýsingar þá skiptir undirbúningur mestu máli. Áætlun byggð á áður skráðum gögnum er stundum hægt að nota til að gera sér í hugalund hvernig hlutir muni þróast í framtíðinni. Breytingar á hitastigi, sjávarstraumum og ástandi sjávar gera það að verkum að ekki er auðvelt að geta rétt til um framtíðina.
Með Scanbas kerfinu er stefnt að því í framtíðinni að geta borið saman alla þætti er snerta veiðar við áður skráð gögn. Þannig má t.d. ímynda sér að á sama skjá má sjá yfirstandandi hol og á sama tíma gamla holið sem tekið var á sama stað en löngu áður. Með slíkum samanburði er hægt að gera sér betur og hraðar grein fyrir því hvort draga eigi lengur eða jafnvel hífa og halda á annað veiðisvæði.
Annað áhugaverður þáttur er söfnun á upplýsingum á veiðislóð til að auðvelda skilning á hreyfingu á fiski vegna áhrifa sjávarhita, strauma og fjölda skipa á veiðislóð.
Scanbas kerfið mun í framtíðinni leggja mikla áherslu á alla skráningu upplýsinga. Þegar nemar eru notaðir til skráningar á upplýsingum þeim sem hafa áhrif á hagkvæmni veiðanna munu á sama tíma verða skráð gögn er varða uppruna þ.e. veiðisvæði og þar með talið upplýsingar er varða rekjanleika aflans.

Yfirlits og feriskráningarmynd

Yfirlits og varpa

Dýptarmælir

Varpa og dýptarmælir

Varpa og feriskráningarmynd

Varpa

Feriskráningarmynd og dýptarmælir

Feriskráningarmynd