Athuganir um margra ára skeið hafa leitt í ljós að veður, vindar og straumaskilyrði hafa áhrif á skilvirkni og afköst við nútíma togveiðar. Að auki hafa botnsskilyrði og hitastig sjávar mikið að segja, auk þess sem ólíkar fisktegundir hafa ólíkt hegðunarmynstur.
Viðskiptahugmynd Scanmar hefur alltaf verið sú að þróa vörutegundir sem geta hjálpað sjómönnum að gera eigin endurbætur á veiðarfærum og veiðitækni. Þannig geta þeir fljótt aðlagast breytingum á aðstæðum.
Veiðikerfi Scanmar eru þróuð á 30 ára tímabili með það fyrir augum að veita sjómönnum nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingar sem geta aukið afköst þeirra við veiðarnar, auk þess að leiða til sparnaðar vegna minna tjóns og slits en ella á veiðarfærunum.
Veiðikerfi Scanmar byggja á reynslu Scanmar og tækni sem hefur verið prófuð ítarlega, og er í fararbroddi vegna:
- Háþróaðrar tækni til að senda boð með hljóðrænum hætti.
- Nútímalegustu brúarkerfa sem byggja á einstæðri tækni til að meðhöndla merki sem berast.
- Myndrænnar framsetningar.
- Alhliða framboðs á harðgerðum og áreiðanlegum nemum þar sem rafeindabúnaðurinn er varinn í sérþróuðu plastefni.
- Hægt er að uppfæra öll brúarkerfi til að taka á móti merkjum frá öllum nemum, og það er hægt að uppfæra þau með nýjum nemum ef þörf krefur. Eina undantekningin frá þessu er ScanMate 2/4.
Veiðikerfi Scanmar eru sett saman úr:
Brúarkerfi
- Móttökueiningar
- Skjáeiningar
Nemar
- Vörpunemar (Margvirkir)
- Hleranemar (Margvirkir)
- Nemar sem sýna snertingu í botn
- Flæðinemar
- Höfuðlínunemi
- Höfuðlínusonda
Ýmislegt
- Neðansjávar hljóðnemar
- Hleðslutæki
- Sett til að setja upp nema á veiðarfærin